Sigurborg Kr. Hannesdóttir

Sigurborg Kr. Hannesdóttir lauk, árið 2008, kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth, sem þróaði 5Rytmana og varð þar með fyrsti 5Rytma kennarinn hér á landi.
Hún kynntist 5Rytmunum árið 1999 og hefur sótt námskeið víða erlendis, hjá fjölmörgum kennurum. Einnig hefur hún skipulagt námskeið hér á landi frá árinu 2000, með Alain Allard.
Til að komast að í kennaraþjálfun þarf að hafa dansað að lágmarki 500 stundir með kennara og hafa sótt ýmis sértæk námskeið.
Sigurborg er jafnframt Kripalu jógakennari og hefur réttindi í Phoenix Rising jógaþerapíu.
Einnig hefur hún sótt mörg námskeið hjá Spirit Horse Nomadic Circle í Wales, þar sem unnið er m.a. með ritúal og sagnalist. Í frístundum fæst hún við að syngja og segja sögur.
Sigurborg hefur yfir tuttugu ára reynslu af kennslu í skólum og á námskeiðum.
Hún starfar nú sem ráðgjafi, er búsett í Grundarfirði á Snæfellsnesi, en kennir einnig á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
„Þegar ég fann 5Rytma dansinn, fann ég sjálfa mig. Þann hluta af mér sem var vannærður meðan ég gaf bara rými fyrir það sem við flest gerum, vinnu og jarðbundna tilveru. Dansinn gefur mér tengingu við óravíddir tilverunnar og kennir mér að lifa lífinu lifandi.“