Tímar og námskeið
Boðið er upp á tíma og námskeið á vegum Sigurborgar, á höfuðborgarsvæðinu, á Snæfellsnesi og víðar.
OPNIR TÍMAR
Opnir tímar þar sem dansað er með leiðsögn, í gegnum öldu, þ.e. alla rytmana í þessari röð; flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð, Waves (öldur). Hentar jafnt þeim sem hafa dansað áður, til að hleypa dansaranum út reglulega og þeim sem eru að prófa í fyrsta sinn.
Waves eru fyrsta „stigið“ í 5Rytmunum, síðan tekur við Heartbeat þar sem unnið er með tilfinningar, þá Cycles, fyrir lífsskeiðin og loks Mirrors, þar sem hrist er upp í egóinu.
Á haustönn 2011 eru vikulegir opnir tímar í Reykjavík, alla miðvikudaga kl. 18 -20, Dansverkstæði, Skúlagötu 28, 4. hæð.
Meira um þá hér.
MITT 2012
Miðvikudaginn 28. desember kl. 17.30 - 22.30, í Reykjavík
5Rytma dans og markmiðaspjald fyrir árið 2012.
Lítið en kraftmikið námskeið og mögnuð leið til að undirbúa nýtt ár og nýja tíma.
Meiri upplýsingar hér.
RÁÐLAGÐUR DAGSKAMMTUR AF DANSI
Hálfs- til heilsdags námskeið, kennt víða um land.
Í gegnum 5Rytma® dans er opnað fyrir orkuna í líkamanum og dansarinn sem býr í hverjum og einum fær útrás. Rytmarnir fimm, flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð, mynda öldu þegar dansað er í gegnum þá í þessari röð (Waves). Með því að fylgja einföldum leiðbeiningum kynnist þú hverjum rytma, opnar, losar um og hreyfir við. Þú gefur þér leyfi til að kynnast nýjum hliðum á sjálfri/sjálfum þér. Yfirskrift námskeiðsins vísar til þess að hægt er að dansa sig inn í betri heilsu, á hverjum degi.
DJÚPT Í DANSINN
Hálfs- til heilsdags námskeið, kennt víða um land.
Ef þú hefur prófað 5Rytmana og mætt í 2 klst. tíma, þá kemur að því að þig fer að langa til að fara dýpra. Lengri námskeið gefa mjög mikið og því fleiri dagar í dansi, því betra!
Djúpt í dansinn eru tvö hálfs dags námskeið á vorönn 2011, í Kramhúsinu í Reykjavík. Á fyrra námskeiðinu verður gestakennari, Annska Ólafsdóttir, sem lýkur kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth í apríl.
Á námskeiðunum er kafað dýpra í hvern Rytma og sá kraftur og sú heilun sem lengri tími í hreyfingu gefur, losnar úr læðingi.
Meira hér.
DANS FYRIR LÍFIÐ
Ýmist kennt sem eins dags námskeið eða lengra.
Lífið er dans og í dansinum erum við lifandi. Þegar lífið kallar eru oft fyrstu viðbrögðin okkar þau að fara í vörn eða reyna að koma á það böndum. Í 5Rytma® dansinum uppgötvum við að við getum flætt með lífinu, opin, heil og skapandi. Í gegnum dansinn upplifum við traust á lífinu, hvernig við segjum já eða nei og meinum það, sleppum algjörlega takinu af því sem ekki er í okkar valdi að stjórna, svífum á vængjum gleðinnar og finnum sátt og kyrrð. Því aðeins þú getur dansað dansinn þinn og lifað lífinu þínu.
DANS Á SUMARSÓLSTÖÐUM
Dalsá í Mosfellsdal
Á sumarsólstöðum þegar dagur er lengstur og nóttin styst og gjafir jarðar í fullum blóma, dönsum við 5Rytmana og höldum ritúal til heiðurs jarðargyðjunni og birtunni. Þetta eru tímamótin, þröskuldurinn. Við njótum sumarblómans til hins ítrasta, áður en dregur úr birtu og krafti og við tekur haust og síðan vetur, þar sem við förum í hýði og nærumst á vetrarforðanum.
Dalsá er einstakur staður, heimili og helgistaður Jóhönnu B. Magnúsdóttur. Við dönsum við opinn eld í skjóli trjáa, heyrum nið árinnar, finnum kraft jarðar undir fótum og vind á vanga.
Á eftir njótum við veitinga sem allir þátttakendur leggja með sér á sameiginlegt borð.
ÞITT VILLTA HJARTA
5Rytma dansbúðir að sumri
Þér gefst tækifæri til að slökkva á síbylju hugans, stíga út úr daglegu amstri og fara út á land til að styrkja tengslin við líkama og sál í gegnum 5Rytma dans, jóga, sögustundir og ritúöl.
Við bjóðum þínu villta og heita hjarta að taka þátt, í vímulausu umhverfi og góðum félagsskap.
Næst sumarið 2012 - nánari upplýsingar síðar.