Í fyrsta sinn
Eina leiðin til að kynnast 5Rytmunum er að prófa! Ef þú finnur fæturna og hjartað toga í þig, geturðu komið í opna tíma - eða skellt þér beint í djúpu laugina og farið á lengra námskeið.
Það getur þurft kjark til að drífa sig af stað og dansa, kannski þar sem maður þekkir engan. En þegar athyglin beinist að líkamanum, önduninni og hreyfingunni hverfur feimnin og í gegnum dansinn og músíkina er auðvelt að gleyma sér.
Hlutverk kennarans er að leiða inn í þau munstur sem tilheyra hverjum rytma, opna fyrir þá hjá dansaranum. Dansinn okkar allra er ólíkur, hver og einn er að dansa sinn dans, á þeim grunni sem 5Rytmarnir gefa. Og það er ekki hægt að gera þetta vitlaust!
Í hverjum tíma er yfirleitt blanda af fólki sem hefur dansað áður og fólki sem er að prófa í fyrsta sinn. Hvert skipti er þó nýtt og því erum við öll alltaf byrjendur.
Fólk er á öllum aldri, konur og karlar og af öllum stærðum og gerðum. Það er alltaf pláss fyrir þig!
Verð í opna tíma er kr. 2.200.
Athugið að það er ekki hægt að greiða með debet- eða kreditkorti.
Sjá dagskrána hér og nánari lýsingu á námskeiðum hér.