5 Rytma dans ®
Í hverri manneskju býr dansari. Frjáls dansari, sem er óbundinn af hugmyndum um hvernig dans á að líta út.
5Rytma dansinn er leið til gefa þessum innri dansara leyfi til að finna sína tjáningu.
5Rytmarnir eru þróaðir af Gabrielle Roth og eru kenndir um allan heim.
Hreyfing er líkamanum eðlislæg. Þegar við heyrum takt og tónlist bregðumst við ósjálfrátt við, sláum taktinn eða förum að hreyfa okkur. Við hreyfinguna opnast líkaminn upp og það losnar um höft og hindranir.
Rytmarnir fimm eru flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð. Þegar þeir eru dansaðir í þessari röð, verður til alda sem flæðir í gegnum líkamann og leysir orku og kjark úr læðingi, losar um hindranir og heilar gömul sár.
5Rytmarnir snúast ekki um dansspor, heldur er leitt í gegnum einfalt munstur, eftir allskonar tónlist og þannig opnað fyrir hvern rytma.
Í 5Rytmunum notum við form og aga til að finna frelsið í dansinum, þannig að dansarinn sem býr í hverjum og einum finnur sína tjáningu.
Dansinn er leið til að hreyfa við bæði líkama og sál,vakna til lífsins og uppgötva sífellt fleiri hliðar á sjálfum sér, allt frá þeim hráu, líkamlegu, frumstæðu, til þeirra djúpu, vitru, andlegu og allt þar á milli. Þegar líkaminn opnast, opnast líka hugur og tilfinningar og sköpunarkrafturinn er virkjaður sem aldrei fyrr.
Það eru til ýmsar leiðir til að tengja líkama og sál og verða meðvitaðri og meira lifandi, t.d. jóga og hugleiðsla. 5Rytmarnir eru ein slík leið.
Waves / öldur eru fyrsta „stigið“ í 5Rytmunum, síðan tekur við Heartbeat þar sem unnið er með tilfinningar, þá Cycles, fyrir lífsskeiðin og loks Mirrors, þar sem hrist er upp í egóinu.
Við lifum á mögnuðum tímum sem kalla á að við endursköpum flesta hluti í lífi okkar – og líka okkur sjálf. Ekki í eitt skipti fyrir öll, heldur aftur og aftur og aftur. 5Rytmarnir eru einstök leið til að endurskapa og enduruppgötva, því þannig flæðir líka sjálfur sköpunarkrafturinn. Í gegnum dansinn finnum við bæði sveigjanleika og jarðtengingu sem hjálpar til að losa um það sem orðið er fast í líkama og huga og öðlumst meiri kjark til að mæta því óþekkta.
5Rytmarnir eru dans fyrir lífið!